← Allar fréttir

Íslandsmetunum rignir í Georgíu

Hafdís Sigurðardóttir úr UFA bætti í dag Íslandsmetið í langstökki utanhúss, þegar hún stökk 6,41 m á Evr­ópu­keppni landsliða í frjálsíþrótt­um í Tbil­isi í Georgíu. Þá var Kolbeinn Höður Gunnarsson úr UFA boðhlaupssveit Íslands í 4x100 m boðhlaupi karla sem gerði sér lítið fyrir og sló 18 ára gamalt Íslandsmet í greininni.

Hafdís Sigurðardóttir úr UFA bætti í dag Íslandsmetið í langstökki utanhúss, þegar hún stökk 6,41 m á Evr­ópu­keppni landsliða í frjálsíþrótt­um í Tbil­isi í Georgíu og sigraði í greininni. Fyrra met Hafdísar var 3,36 sett á Akureyri snemma í fyrrasumar.

Annað Íslandsmet féll á mótinu í dag þegar boðhlaupssveit karla í 4x100 m boðhlaupi gerði sér lítið fyrir og sló 18 ára gamalt Íslandsmet í greininni. Kolbeinn Höður Gunnarsson úr UFA var í sveitinni ásamt Jó­hanni Birni Sig­ur­björns­syni, Ara Braga Kára­syni og Juan Ramon Bor­ges Bosque. Sveitin hljóp á 40,84 en fyrra met var 41,19.

Þá náði Kolbeinn Höður góðum árangri í 200 m hlaupi þegar hann hljóp á 21,37 og tryggði sér með því þátttökurétt á HM 19 ára og yngri sem haldið verður í Eu­gene í Banda­ríkj­un­um í næsta mánuði.