← Allar fréttir

Íslandsmet og góður árangur UFA

Reykjavíkurleikarnir í frjálsum íþróttum fóru fram í dag og UFA náði þar góðum árangri. Hæst ber nýtt Íslandsmet Hafdísar Sigurðardóttur, íþróttamanns ársins hjá UFA í fyrra, upp á 6,47 metra. Hafdís byrjar nýtt ár eins og því seinasta lauk. Til h...

Reykjavíkurleikarnir í frjálsum íþróttum fóru fram í dag og UFA náði þar góðum árangri. Hæst ber nýtt Íslandsmet Hafdísar Sigurðardóttur, íþróttamanns ársins hjá UFA í fyrra, upp á 6,47 metra. Hafdís byrjar nýtt ár eins og því seinasta lauk. Til hamingju Hafdís.

Þorbergur Ingi sigraði í 3000 metra hlaupinu nokkuð örugglega. Bjartmar Örnuson varð annar eftir góðan endasprett í 800 metra hlaupi. Kolbeinn Höður varð annar í 60 metra hlaupi á eftir Gardner frá Bretlandi, en þar var frá okkur í úrslitum einnig Andri Fannar. Í 60 metrum hjá konunum áttum við Steinunni Erla í þriðja sæti.

Í hástökki kvenna endaði Selma Líf í öðru sæti.

400 metrar karla var mjög spennandi en þar varð Kolbeinn Höður í öðru sæti eftir hörkukeppni við Ívar Kristinn úr Í.R. Í 400 metrum kvenna varð Steinnunn Erla í öðru sæti á 56,91 sem er hennar besti tími innanhúss, hún varð á eftir Hannah frá Þýskalandi. Í 600 metra hlaupi 15 ára og yngri unnum við þrefaldan sigur þar sem Helgi Pétur varð fyrstur, Raquel Pino annar og Arnar Valur lenti í þriðja sæti. Glæsilegt hjá þeim félögum.

Frábær árangur hjá iðkendum UFA... Til hamingju allir.