Íslandsmet og bætingar á RIG
Hafdís Sigurðardóttir bætti eigið Íslandsmet í langstökki um tvo sentimetra þegar hún stökk 6,47m á RIG. Innilega til hamingju með þennan frábæra árangur Hafdís.
Hafdís Sigurðardóttir bætti eigið Íslandsmet í langstökki um tvo sentimetra þegar hún stökk 6,47m á RIG. Innilega til hamingju með þennan frábæra árangur Hafdís.
Önnur helstu úrslit urðu þessi:
Kolbeinn Höður Gunnarsson varð annar í 60m hlaupi á tímanum 6,97s og einnig í 400m hlaupi á 48,53s.
Þorbergur Ingi Jónsson sigraði 3000m hlaupið á tímanum 8:34,80 mín.
Bjartmar Örnuson varð annar í 800m á tímanum 1:54,29 mín.
Steinunn Erla Davíðsdóttir varð önnur í 400m á tímanum 56,91s og þriðja í 60m á 8,02s.
Rakel Ósk Dýrfjörð Björnsdóttir varð þriðja í stangarstökki með stökk upp á 3,10m.
Selma Líf Þórólfsdóttir varð önnur í hástökki með stökk upp á 1,61m.
Helgi Pétur Davíðsson sigraði í 600m á tímanum 1:28,52 mín.
Ragúel Pino Alexandersson varð annar í 600m á tímanum 1:31,81 mín.
Arnar Valur Vignisson varð þriðji í 600m á tímanum 1:31,85 mín.
Þess má geta að í fimm fyrstu sætunum í 600m hlaupi átti UFA fjóra keppendur.

