← Allar fréttir

Hafdís lenti í 16 sæti í langstökki á EM

Hafdís Sigurðardóttir keppti nú í dag í forkeppni í langstökki kvenna á Evrópumeistaramótinu sem fram fer í Swiss þessa dagana. Gerði hún öll þrjú stökkin sín gild í keppninni en það síðasta var langlengst eða 6,27m. Var hún aðeins 4 sætum frá því að komast í úrslit sem telst mjög góður árangur á hennar fyrsta Evrópumeistaramóti. Glæsilegt hjá þér Hafdís og til hamingju með árangurinn. Þess má geta að hún hefur ekki lokið keppni á mótinu því hún keppir í 200m hlaupi á fimmtudaginn! Við hvetjum alla til að fylgjast með með þessari glæsilegu íþróttakonu spreyta sig meðal þeirra bestu í Evrópu - ÁFRAM HAFDÍS!!!