Grunnskólamót UFA 2022
Grunnskólamót UFA í frjálsum fór fram dagana 10.-13. maí sl.

Grunnskólamót UFA í frjálsum fór fram dagana 10.-13. maí sl. Mikið fjör var í Boganum þar sem um 1.100 krökkum í 4.-7. bekk grunnskóla Akureyrarbæjar var boðið að koma að keppa í frjálsum íþróttum. Keppt var í spretthlaupi, hringhlaupi, langstökki, boðhlaupi og reipitogi. Mikið kapp var í krökkunum, allir stóðu sig mjög vel, bæði í keppni og í stuðningsmannaliðum, og vonandi höfðu sem flestir gaman af.
Bæði var um að ræða einstaklingskeppni og keppni milli skóla í hverjum árgangi. Efstu 10 krökkum í hverri grein verður boðið að æfa frítt með UFA í einn mánuð og fá þeir afhent sérstakt viðurkenningarskjal á næstu dögum. Keppni milli skólanna var hörð og í einhverjum tilfellum réðust úrslit um stigahæsta skólann ekki fyrr en í síðustu grein.
Stigahæstu skólarnir voru eftirfarandi:
- 4. bekkur – Lundarskóli
- 5. bekkur – Lundarskóli
- 6. bekkur – Síðuskóli
- 7. bekkur – Brekkuskóli
Við hjá UFA viljum þakka skólunum fyrir samstarfið um þetta mót sem er virkilega skemmtilegt og gefandi. Gaman væri ef sem flestir krakkar kæmu að æfa frjálsar íþróttir með UFA í sumar. Meistaramót Íslands í frjálsum íþróttum fyrir aldurshópinn 11-14 ára verður haldið hér á Akureyri helgina 9.-10. júlí nk. og gaman væri að mæta með stóran og góðan hóp þangað.






