Góður dagur hjá okkar fólki á MÍ
27. júlí 2013 Okkar fólk stóð sig með sóma á fyrri degi Meistaramóts Íslands í frjálsum íþróttum í dag.
Hafdís Sigurðardóttir sigraði allar þrjár greinarnar sem hún keppti í. Hún hljóp 100 m á 11,75 sek sem er nálægt hennar besta tíma í greininni, í 400 m hlaupi háði hún hörkukeppni við Anítu Hinriksdóttur og hafði betur á tímanum 54,46. Langstökkið sigraði hún einnig með yfirburðum með stökki upp á 6,36 sem er jöfnun á hennar besta árangri og íslandsmeti. Kolbeinn Höður átti líka góðan dag. Sigraði 100 m hlaupið á nýju persónulegu meti 10,65 sek og 400 m á 49,78 sek og var í sigursveit UFA í 4x100m boðhlaupi sem setti UFA-met 43,14 sek. Stefán Þór Jósefsson fór á pall í bæði hástökki og langstökki. Hann varð annar í hástökki með jöfnun á sínum besta áranri 1,79 og þriðji í langstökki með bætingu stökk 6,22. Þá varð Bjarki Gíslason annar í langstökki, stökk 6,80. Rakel Ósk náði bætingu í stönginni stökk 3,34 og varð í þriðja sæti. Þá náði Ásgerður Jana öðru sæti í spjótkasti með kasti upp á 38,67m.
Að loknum fyrri keppnisdegi er UFA í þriðja sæti í liðakeppninni á eftir ÍR og FH.

