Góður árangur náðist á frjálsíþróttakeppni RIG
Í dag fór fram frjálsíþróttakeppni RIG í Laugardalshöll en keppendum er boðið á þetta mót og því mikill heiður sem fylgir því að keppa. UFA átti 9 keppendur á mótinu.
Í dag fór fram frjálsíþróttakeppni RIG í Laugardalshöll en keppendum er boðið á þetta mót og því mikill heiður sem fylgir því að keppa. UFA átti 9 keppendur á mótinu og var árangur þeirra eftirfarandir:
Ásgerður Jana tók þátt í þríþraut mótsins og keppti í kúluvarpi, 60m grindarhlaupi og langstökki. Jana hljóp grindina á nýju persónulegu meti 9,59s, þá varpaði hún kúlunni 11,14m og stökk 5,36m í langstökki en þar sem hún gerði fyrstu fjögur stökkin ógild þá fékk hún ekkert stig fyrir langstökkið. Í stigakeppninni í þrautinni hafnaði hún í þriðja sæti með 1477 stig.
Bjarki Gíslason tók þátt í langstökki karla þar sem hann stökk 6,81m og bætti persónulegan árangur sinn innanhúss um 33cm. Þessi árangur Bjarka skilaði honum fjórða sætinu.
Hafdís Sigurðardóttir keppti í 60m hlaupi þar sem hún hafnaði í öðru sæti á tímanum 6,71s og í langstökki þar sem hún stökk 6,21m og varð einnig í öðru sæti.
Kolbeinn Höður keppti í 60m hlaupi þar sem hann bætti tímann sinn í undanúrslitum og hljóp á 6,98s, í úrslitahlaupinu hafnaði hann í þriðja sæti á tímanum 7,03s. Kolbeinn sigraði hins vegar 400m hlaupið á tímanum 48,85s.
Ragúel Pino keppti í 600m hlaupi sveina 15 ára og yngri þar sem hann lenti í 4 sæti á nýju persónulegu meti 1:37,39s.
Rakel Ósk keppti í 60m grindarhlaupi og hafnaði í þriðja sæti á tímanum 9,87s.
Rún Árnadóttir keppti í hástökki, hún stökk 1,53m og hafnaði í 5 sæti.
Selma Líf keppti einnig í hástökki, hún stökk 1,58m og hafnaði í 4 sæti.
Steinunn Erla keppti í 60m hlaupi þar sem hún varð í 5 sæti á tímanum 7,97s en þetta er nýtt persónulegt met. Hún keppti einnig í 400m hlaupi þar sem hún varð í öðru sæti á tímanum 58,46s
Glæsilegur árangur hjá keppendum UFA og verður spennandi að fylgjast með þeim á næstu mótum.
Öll úrslit móta má finna á mot.fri.is

