Góð ferð á MÍ 11-14 ára
26. júní 2013 Góður hópur krakka úr UFA keppti á Meistaramóti Íslands 11-14 ára sem fram fór í Kaplakrika um liðna helgi. Hópurinn vann til níu gullveðlauna, fjögurra silfurverðlauna og fjögurra bronsverðlauna.
Ragúel Pino Alexandersson gerði sér lítið fyrir og vann til fimm gullverðlauna, í hástökki, langstökki, 60m hlaupi, 800m hlaupi, spjótkasti og i. Auk þess varð Ragúel fyrstur í 80m grindahlaupi, en þar sem hann keppti upp fyrir sig taldist hann gestur í þeim hópi og vann ekki til verðlauna. Að lokum vann hann bronsverðlaun í kúluvarpi og komst því á pall í öllum þeim greinum sem hann keppti í.
Frosti Brynjólfsson átti líka gott mót. Hann vann til þrennra gullverðlauna í 100m hlaupi, 800m hlaupi og langstökki og silfurverðlaun í 80m grindahlaupi. Einnig náði hann fjórða sæti í kúluvarpi.
Kolbeinn Fannar Gíslason vann silfur í hástökki og 60m hlaupi og varð í fjórða sæti í langstökki.
Gunnar A. Jónsson vann til bronsverðlauna í spjótkasti.
Ragúel, Gunnar, Kolbeinn og Sigurður Bergmann unnu auk þess gullverðlaun í 4*100m boðhlaupi í flokki 12 ára drengja.
Sesselja Dís vann bronsverðlaun í kúluvarpi og náði fjórða sæti í spjótkasti.
Líney Lilja Þrastardóttir vann bronsverðlaun í 60m hlaupi.

