Glæsilegur árangur hjá Sigþóru í hálfmaraþoni í Kaupmannahöfn
Sigþóra Brynja Kristjánsdóttir langhlaupari úr UFA heldur áfram að gera það gott á hlaupabrautinni.

Sigþóra Brynja Kristjánsdóttir langhlaupari úr UFA heldur áfram að gera það gott á hlaupabrautinni. Síðastliðna helgi hljóp hún hálfmaraþon í Kaupmannahöfn á 1:19:03 sem er besti tími íslenskrar konu á árinu og fjórði besti tími frá uppafi. Fyrir átti Sigþóra 1:20:42 í vegalengdinni frá því í Akureyrarhlaupi í sumar.
Sigþóra hefur átt mjög gott tímabil í sumar og hefur bætt sig í öllum vegalengdum götuhlaupa það er 5 km, 10 km og hálfmaraþoni. Næsta verkefni hjá henni er heimsmeistaramót í utanvegahlaupum í Tælandi í byrun nóvember þar sem hún mun hlaupa 40 km með 2800 m hækkun.

