← Allar fréttir

Glæsilegur árangur á Stórmóti ÍR

Nú um helgina fór fram Stórmót ÍR í Laugardalshöllinni í Reykjavík. UFA átti nokkra keppendur á mótinu sem stóðu sig afar vel og mokuðu inn verðlaununum. Helstu úrslit voru þessi:

Nú um helgina fór fram Stórmót ÍR í Laugardalshöllinni í Reykjavík. Keppendur UFA stóðu sig afar vel að vanda og mokuðu inn verðlaununum. Helstu úrslit voru þessi:

Hafdís Sigurðardóttir, sem var kjörin Íþróttamaður Akureyrar í síðustu viku, kom sá og sigraði í 60m hlaupi, 400m hlaupi og langstökki kvenna. Hafdís bætti sinn persónulega árangur og setti nýtt mótsmeti í bæði 60m hlaupi á tímanum 7,64s og í 400m hlaupi á tímanum 54,36. Þá stökk hún 6,15m í langstökki og varð önnur í 60m grindarhlaupi á tímanum 9,01s en þess má geta að Hafdís hefur ekki keppt í þessari grein í mörg ár ;)

Agnes Eva Þórarinsdóttir sigraði í þrístökki kvenna með stökk upp á 11,16m og varð önnur á eftir Hafdísi í langstökkinu með stökk upp á 5,34.

Ásgerður Jana Ágústdóttir sigraði í kúluvarpi kvenna er hún varpaði kúlunni 11,72m og varð önnur í hástökki er hún stökk yfir 1,50m. Þá varð hún þriðja í langstökki með stökk upp á 5,28m og þriðja í 60m grindarhlaupi á tímanum 9,51s.

Kolbeinn Höður Gunnarsson sigraði í 60m, 200m og 400m hlaupi karla. Kolbeinn setti nýtt mótsmet í bæði 60m hlaupi (7,01s) og 200m hlaupi (21,79) og nálgast hann óðum Íslandsmetið í sínum aldursflokki (Piltar 18-19 ára) en það er 21,73s. Tími Kolbeins í 400m hlaupinu var 48,45s.

Stefán Þór Jósepsson lenti í þriðja til fjórða sæti í hástökki karla með stökk yfir 1,70m.

Rún Árnadóttir sigraði stangarstökkið í flokki stúlkna 16-17 ára er hún vippaði sér yfir 2,60m. Þá varð hún önnur hástökki með stökk yfir 1,59m.

Selma Líf Þórólfsdóttir varð þriðja í hástökki stúlkna 16-17 ára með stökk yfir 1,59m líkt og Rún gerði en Selma fór yfir 1,54m í þriðju tilraun en Rún í annarri.

Berglind Björk Guðmundssdóttir var í fyrsta sæti í 800m hlaupi á tímanum 2:40,64s og önnur í 1500m hlaupi á tímanum 5:29,07.

Sesselja Dís Hreiðarsdóttir varð önnur í kúluvarpi stúlkna 15 ára er hún varpaði kúlunni 9,85m.

Ragúel Pino Alexandersson kom sá og sigraði í 7 greinum af þeim 8 sem hann keppti í en hann keppir í flokki 13 ára pilta. Hann sigraði í: 60m hlaupi á tímanum 8,25s, 200m hlaupi á tímanum 26,87s, 600m hlaupi á tímanum 1:41,02, 60m grindarhlaupi á tímanum 10,10s, kúluvarpi með kast upp á 10,04m, langstökki með stökk upp á 5,02m og stangarstökki með stökk yfir 2,65m. Þá varð hann í öðru sæti í hástökki með stökk yfir 1,47m.

Kolbeinn Fannar Gíslason sem einnig keppir í flokki 13 ára pilta sigraði vin sinn Ragúel í hástökki er hann vippaði sér yfir 1,53m. Þá varð hann annar í 60m hlaupi á tímanum 8,58s, langstökki með stökk upp á 4,84m og í 60m grindarhlaupi á tímanum 10,62s.

Ragnar Óli Ragnarsson sem keppir í flokki 11 ára pilta sigraði kúluvarpið er hann varpaði kúlunni 8,94m og varð annar í 60m hlaupi á tímanum 9,53s, í langstökki með stökk upp á 3,90m og í hástökki með stökk yfir 1,18m.

Sannarlega glæsilegur árangur hjá okkar fólki á þessu mót! Innilega til hamingju keppendur og þjálfarar!!!

Öll úrslit má finn á: http://www.ir.is/media/misc/StormotIR2014yfirlit.htm