Glæsilegur árangur á MÍ 15-22 ára
Helgina 10 og 11 ágúst sl fór fram Meistaramót Íslands 15-22 ára á Kópavogsvelli. 11 keppendur frá UFA mættu á staðinn sem stóðu sig afar vel og uppskáru 16 gull, 7 silfur og 7 brons. Þá varð liðið í 4 sæti í samanlagðri stigakeppni.
Eftirfarandi keppendur unnu til verðlauna:
Agnes Eva sem keppir í flokki ungkvenna 20-22 ára sigraði kringlukastið með kast upp á 27,30m og varð önnur í: langstökki er hún stökk 4,90m og þrístökki er hún stökk 10,83m.
Ásgerður Jana sem keppir í flokki stúlkna 16-17 ára sigraði: langstökkið með stökk upp á 5,20m, kúluvarpið með kast upp á 12,62m, spjótkastið með kast upp á 45,44m og 100m grindarhlaup á tímanum 15,47s. Þá varð hún önnur í hástökkinu þegar hún fór yfir 1,61m og þriðja í kringukasti með kast upp á 26,43m.
Berglind Björk sem keppir í flokki stúlkna 15 ára sigraði: 800m hlaup á tímanum 2:33,81 og 1500m hlaup á tímanum 5:17,44. þá varð hún önnur í þrístökki er hún stökk 10,32m og þriðja í: 400m hlaupi á tímanum 65,29s og 300m grindarhlaupi á tímanum 50,21s.
Fríða Björk sem keppir í flokki stúlkna 15 ára sigraði sleggjukastið með kast upp á 43,39m og varð önnur í: kúluvarpi með kast upp á 11,80 og kringlukasti með kast upp á 37,34.
Kolbeinn Höður sem keppir í flokki 18-19 ára pilta sigraði í: 100m hlaupi á tímanum 10,91s og 200m hlaupi á tímanum 22,25s.
Rún sem keppir í flokki 15 ára stúlkna sigraði stangarstökkið þegar hún sveif yfir 2,70m og varð önnur í hástökki þegar hún fór yfir 1,55m.
Selma Líf sem keppir í flokki 15 ára stúlkna sigraði hástökkið þegar hún fór yfir 1,55m líkt og Rún en Selma átti færri tilraunir við hæðina 1,47m.
Sigþór Gunnar sem keppir í flokki 15 ára pilta sigraði spjótkastið með kast upp á 51,28m og varð þriðji í 100m grindarhlaupi á tímanum 15,42s.
Stefán Þór sem keppir í flokki ungkarla 20-22 ára sigraði: stangarstökkið er hann sveif yfir 3,60m og þrístökkið með stökk upp á 13,14. þá varð hann þriðji í: 400m hlaupi á tímanum 56,20s, 110m grindarhlaup á tímanum 18,08s, hástökki með stökk yfir 1,67 og spjótkasti með kast upp á 40,06.
Þá sigraði sveit stúlkna 15 ára 4*100 metra boðhlaupið en í sveitinni voru þær: Berglind Björk, Selma Líf, Melkorka Ýr og Rún.
Öll önnur úrslit mótsins má finn á http://mot.fri.is/cgi-bin/ibmot/timesedillib2129.htm
Innilega til hamingju með frábæran árangur!!!

