← Allar fréttir

Gautaborgarleikar 3. – 5. júlí 2015

Gautaborgarleikarnir fara fram dagana 3. 5. júlí. Keppendur UFA eru tuttugu og níu að þessu sinni og því ansi stór og glæsilegur hópur sem hélt til Svíþjóðar í nótt. Í dag eru Gautaborgarleikarnir stærsta frjálsíþóttamót í Skandinavíu með yfir 3500 þátttakendur frá 20 löndum. Mótið sjálft fer fram á Ullevi Arena, hinum glæsilega leikvangi Gotverja, í miðborg Gautaborgar. Það verður spennandi að fylgjast með okkar fólki á þessu stórmóti. Fyrir þá sem hafa áhuga á að fylgjast með gengi hópsins þá er hér linkur að heimasíðu mótsins http://www.vuspel.se/

Gautaborgarleikarnir fara fram dagana 3. – 5. júlí. Keppendur UFA eru tuttugu og níu að þessu sinni og því ansi stór og glæsilegur hópur sem hélt til Svíþjóðar í nótt. Í dag eru Gautaborgarleikarnir stærsta frjálsíþóttamót í Skandinavíu með yfir 3500 þátttakendur frá 20 löndum. Mótið sjálft fer fram á Ullevi Arena, hinum glæsilega leikvangi Gotverja, í miðborg Gautaborgar. Það verður spennandi að fylgjast með okkar fólki á þessu stórmóti. Fyrir þá sem hafa áhuga á að fylgjast með gengi hópsins þá er hér linkur að heimasíðu mótsins http://www.vuspel.se/