Frábær árangur UFA á MÍ 15-22 ára - 7 Íslandsmeistaratitlar
Helgina 18.-20. mars sl. fór fram Meistaramót Íslands í frjálsum í Laugardalshöll, Reykjavík.

Helgina 18.-20. mars sl. fór fram Meistaramót Íslands í frjálsum í Laugardalshöll, Reykjavík. Í stigakeppni liða varð HSK/Selfoss í fyrsta sæti, FH í öðru og Ármann í því þriðja. UFA varð í sjötta sæti í stigakeppninni af tíu liðum.
UFA átti 5 keppendur á mótinu, þau Árnýju Helgu Birkisdóttur, Birni Vagn Finnsson, Sigurlaugu Önnu Sveinsdóttur, Róbert Mackay og Tjörva Leó Helgason. Þjálfarinn þeirra hann Guðmundur Daði Kristjánsson fylgdi hópnum. Skemmst er frá því að segja að þau náðu í sjö Íslandsmeistaratitla í sínum aldurshópum, sem verður að teljast glæsilegur árangur.
Hópurinn stóð sig mjög vel, mikið um persónulegar bætingar og bestu tíma á árinu.
Eftirfarandi árangur keppenda var þessi:
Árný Helga Birkisdóttir: Langstökk: 3,81m, 9.sæti, kúluvarp: 6,84m, 12.sæti.
Birnir Vagn Finnsson: 60m: 7,09, 1.sæti, hástökk: 1,85m, 2.sæti, þrístökk: 11,63, 1.sæti, kúluvarp: 11,31m, 2.sæti, 60m grindahlaup: 8,47, 1.sæti, langstökk: 6,66, 1.sæti.
Róbert Mackay: 60m: 7,31, 1.sæti, 400m: 53,76, 2.sæti, langstökk: 5,22, 9.sæti, 60m grindahlaup: 9,14, 2.sæti, 200m: 23,83, 1.sæti.
Sigurlaug Anna Sveinsdóttir: 60m: 8,26, 4.sæti, 400m: 62,28, 1.sæti, kúluvarp: 11,39, 4.sæti, 200m: 27,66, 4 sæti, langstökk: 4,73, 4.sæti.
Tjörvi Leó Helgason: 60m: 8,16, 9.sæti, hástökk: 1,62, 7.sæti, þrístökk: 10,71, 3.sæti, langstökk: 4,92, 11.sæti.
Það er því ljóst að framtíðin er björt hjá þessum fyrirmyndar ungmennum hjá UFA og gaman verður að fygjast með þeim á komandi mótum. Innilega til hamingju keppendur og þjálfarar!




Myndir frá FRÍ og Elsu Maríu Guðmundsdóttur

