Frábær árangur þriggja UFA kvenna í maraþoni
Þrjár UFA konur gerðu sér lítið fyrir og hlupu maraþon á undir þremur tímum í Sevilla maraþoni 15. febrúar síðastliðinn. Aðeins níu íslenskar konur eiga tíma undir þremur tímum og verður því að teljast skemmtilegt afrek að þrjár akureyskar konur hafi náð þessum árangri í sama hlaupinu.

Sigþóra Brynja Kristjánsdóttir var fyrst þeirra þriggja á 2:51:25, Anna Berglind önnur á 2:51:42 og Rannveig Oddsdóttir þriðja á 2:53:23. Tímar Sigþóru og Önnu Berglindar eru þeirra bestu tímar í maraþoni til þessa og skipa þeim í fjórða og fimmta sæti á lista yfir bestu maraþontíma íslenskra kvenna frá upphafi. Rannveig hljóp á 44 sek betri tíma í Berlínarmaraþoni 2012 sem er sjöundi besti tími frá upphafi og tíminn hennar nú hefði tryggt sama sæti á listanum.
Tímar Önnu Berglindar og Rannveigar eru jafnframt Íslandsmet í aldursflokkum. Anna Berglind bætti eigið met í aldursflokki 45-49 ára kvenna (fyrra met hennar var 2:53:05) og Rannveig bætti met Sigurbjargar Eðvarðsdóttur í flokki 50-54 ára kvenna um nærri 13 mínútur en metið var 3:06:09.
UFA óskar þeim stöllum innilega til hamingju með árangurinn.
Tíu bestu maraþontímar íslenskra kvenna
- Martha Ernstsdóttir 2:35:15
- Andrea Kolbeinsdóttir 2:42:11
- Elín Edda Sigurðardóttir 2:44:48
- Sigþóra Brynja Kristjánsdóttir 2:51:25
- Anna Berglind Pálmadóttir 2:51:42
- Helen Ólafsdóttir 2:52:30
- Rannveig Oddsdóttir 2:52:39
- Anna Jeeves 2:54:43
- Bryndís Ernstsdóttir 2:55:36
- Rúna Egilsdóttir 3:00:28