Fjórir félagsmenn fengu viðurkenningar á uppskeruhátíð FRÍ fyrir góðan árangur 2021
FRÍ veitti í vikunni viðurkenningar fyrir góðan árangur á árinu 2021. Fjórir íþróttamenn úr UFA hlutu þar viðurkenningar.
FRÍ veitti í vikunni viðurkenningar fyrir góðan árangur á árinu 2021. Fjórir íþróttamenn úr UFA hlutu þar viðurkenningar.
Anna Sofia Rappich fékk viðurkenningu fyrir besta afrek öldunga, 60 m hlaup.
Baldvin Þór Magnússon hlaut tvær viðurkenningar, millivegalengdahlaupari ársins og óvæntasta afrekið. Baldvin Þór stundar nám og æfingar í Bandaríkjunum og hefur náð framúrskarandi árangri í millivegalengdum á árinu. Hann setti á árinu Íslandsmet í 3000 m hlaupi innanhúss og 1500 m utanhúss og aldursflokkamet í flokki pilta 22 ára og yngri í 3000 m utanhúss.
Sigþóra Brynja Kristjánsdóttir hlaut viðurkenninguna langhlaupari ársins. Sigþóra hefur átt mjög gott ár, hefur bætt sig öllum vegalengdum sem hún hefur keppt í þ.e. 1500, 3000, 5000 og 10000 m á braut, 5km, 10km og maraþoni.
Þorbergur Ingi Jónsson hlaut viðurkenninguna utanvegahlaupari ársins. Þorbergur sýndi líkt og undanfarin ár mikla yfirburði í þeim utanvegahlaupum sem hann tók þátt í.
Við óskum okkar fólki til hamingju með árangurinn.

