Evrópukeppni landsliða fór fram í Stara Zagora í Búlgaríu 20. -21. júní.
Evrópukeppni landsliða fór fram í Stara Zagora í Búlgaríu 20. -21. júní. Árangur íslenska landsliðsins er sá besti sem íslenskt lið hefur náð hingað til. Liðið lenti í 6. sæti í 2. deild, með 156,5 stig og er 30. í röðinni af 50 þjóðum í Evrópu. Til hamingju Frjálsíþróttasamband Íslands sem og landsliðsfólk FRÍ.

UFA hópurinn stóð sig með prýði.
Hafdís var besti langstökkvarinn á staðnum og sigraði örugglega með jöfnun á Íslandsmetinu 6,45m. Hafdís lenti svo í þriðja sæti í 400m á tímanum 54,13s og í sjötta sæti í þrístökki með stökk upp á 12,77m. Þá var Hafdís í báðum boðhlaupssveitunum, 4x100 og 4x400 m.
Kolbeinn Höður lenti í þriðja sæti í 400m á tímanum 47,52s sem er bæting. Kolbeinn hljóp sig svo inn í þriðja
sætið á ný í 200m hlaupinu á tímanum 21,63s. Nýtt Íslandsmet var sett í 4x100 m boðhlaupi en sveitin kom í 5. sæti í mark á 40,72 sek. Sveitina skipuðu þeir Kolbeinn Höður Gunnarsson, Juan Ramón Borges Bosque, Ívar Kristinn Jasonarson og Ari Bragi Kárason. Kolbeinn Höður hljóp svo síðasta sprettinn í 4x400 m.
Steinunn Erla hljóp 200m og kom í mark á tímanum 25,60sek einnig sem hún hljóp 100m á tímanum 12,51s. Þá var Steinunn Erla í báðum boðhlaupssveitunum, 4x100 og 4x400 m.
Anna Berglind var með góða bætingu í 5000m þegar hún kom í mark á tímanum 18:26,66 mín.
Til hamingju öll