Enn eitt þátttökumetið í vetrarhlaupum UFA
Annað vetrarhlaup vetrarins fór fram í gær í fimbulkulda.
Annað vetrarhlaup vetrarins fór fram í gær í fimbulkulda. Hlauparar létu það samt ekki á sig fá og mættu 83 hlauparar til leiks sem er nýtt þáttökumet. Hlaupinn var 7 km leið frá World Class við Strandgötu eftir strandstígnum inn að flugvelli og til baka. Halldór H. Jónsson var fyrstur karla að þessu sinni, Gunnar Atli Fríðuson annar og Helgi Rúnar Pálsson þriðji. Anna Berglind Pálmadóttir var fyrst kvenna, Sigþóra Brynja Kristjánsdóttir önnur og Eva Birgisdóttir þriðja. Hér má sjá röð hlaupara og stöðuna í stigakeppni einstaklinga og liða eftir tvö hlaup.

