Birnir Vagn Finnsson bætti 20 ára gamalt aldursflokkamet í 60 metra hlaupi utanhúss.
Birnir Vagn Finnsson bætti 20 ára gamalt met Óttars Jónssonar, sem var 7,17. Birnir hljóp 60 metrana á 7,09 á móti á Akureyrarvelli sl.laugardag. Birnir hefur verið að gera mjög góða hluti nú í sumar, bætti sig umtalsvert í langstökki og náði silfur...

Birnir Vagn Finnsson bætti 20 ára gamalt met Óttars Jónssonar, sem var 7,17. Birnir hljóp 60 metrana á 7,09 á móti á Akureyrarvelli sl.laugardag.
Birnir hefur verið að gera mjög góða hluti nú í sumar, bætti sig umtalsvert í langstökki og náði silfurverðlaunum á Meistaramóti Íslands sem fram fór á Akureyri ekki alls fyrir löngu. Grindahlaup er einnig ein af greinum Birnis, en þar á hann besta árangur sumarsins í sínum aldursflokki 16-17 ára, 14,91.
Við hjá UFA gleðjumst yfir góðum árangri Birnis, en hann er góð fyrirmynd yngri iðkendum, jafn innan vallar sem utan. Birnir hefur einnig aðstoðað við þjálfun yngri iðkenda UFA í sumar.

