← Allar fréttir

Baldvin og Sigþóra Íslandsmeistarar í hálfu maraþoni 2022

Íslandsmeistaramót í hálfu maraþoni fór fram í Akureyrarhlaupi í kvöld.

Íslandmeistaramót í hálfu maraþoni fór fram í Akureyrarhlaupi í kvöld. Okkar fólk Baldvin Þór Magnússon og Sigþóra Brynja Kristjánsdóttir báru sigur úr bítum og á UFA því Íslandsmeistara í hálfmaraþoni 2022 í bæði karla- og kvennaflokki.

Baldvin hljóp á 1:08:48 og bætti brautarmet Arnars Péturssonar um rúma mínútu en met Arnars frá 2019 var 1:09:58. Arnar Pétursson var annar karla og var einnig undir sínu fyrra meti, hljóp á 1:09:16, þriðji var Guðmundur Daði Guðlaugsson á 1:14:54.

Sigþóra hljóp á 1:20:43 og jafnaði brautarmet Elínar Eddu Sigurðardóttur frá 2019 og bætti sinn besta tíma um tæpar tvær mínútur. Önnur var Íris Dóra Snorradóttir á 1:25:30 og þriðja Linda Heiðarsdóttir á 1:33:29.

Einnig var keppt í 5 og 10 km hlaupi.

í 10 km hlaupi karla var Börkur Þórðarson fyrstur á 35:35, annar var Stefán Pálsson á 37:09 og þriðji var Atli Sveinbjörnsson á 37:42. Í kvennaflokki sigraði Hulda Fanný Pálsdóttir á 39:41, önnur var Rannveig Oddsdóttir á 40:16 og þriðja var Helga Gyðný Elíasdóttir á 40:23.

Í 5 km hlaupi karla sigraði Helgi Rúnar Pálsson á 18:29, annar var Jón Þór Kristjánsson á 19:34 og þriðji var Björgvin Ingi Ólafsson á 19:55. Í kvennaflokki sigraði Anna Beglind Pálmadóttir á 19:19, önnur var Karólína Björk Ingadóttir á 22:55 og þriðja var Kristín Reynisdóttir á 23:48.

Þátttakendur voru alls um 130 á öllum aldri. Hér má sjá tíma allra sem hlupu.