← Allar fréttir

Arnar og Elín Edda Íslandsmeistarar í hálfu maraþoni

Akureyrarhlaup Íslenskra verðbréfa og World Class fór fram í gær. Keppt var í 5 km, 10 km og hálfmaraþoni og var hálfmaraþonið jafnframt Íslandsmeistaramót í greininni. Íslandsmeistarar í hálfmaraþoni 2019 eru þau Arnar Pétursson og Elín Edda Sigurð...

Akureyrarhlaup Íslenskra verðbréfa og World Class fór fram í gær. Keppt var í 5 km, 10 km og hálfmaraþoni og var hálfmaraþonið jafnframt Íslandsmeistaramót í greininni.

Íslandsmeistarar í hálfmaraþoni 2019 eru þau Arnar Pétursson og Elín Edda Sigurðardóttir sem bæði keppa fyrri ÍR. Arnar hljóp á 1:09:58 og bætti eigið brautarmet um þrjár sekúndur. Elín Edda Sigurðardóttir sigraði í kvennaflokki á 1:20:43 og bætti brautarmet kvenna um rúmar tvær mínútur. Annar í karlaflokki var Vilhjálmur Þór Svansson ÍR á 1:18:55 og þriðji var Vignir Már Lýðsson ÍR á 1:23:56. Í kvennaflokki var Sigþóra Brynja Kristjánsdóttir UFA önnur á 1:26:25 og Bergey Stefánsdóttir var þriðja á 1:29:06.

Í 10 km hlaupi sigraði Maxime Sauvageon í karlaflokki á 34:22, annar karla var Helgi Rúnar Pálsson UFAá 37:53 og Ingólfur Gíslason var þriðji á 38:24. Í kvennaflokki sigraði Anna Berglind Pálmadóttir UFA á 40:09, önnur var Gígja Björnsdóttir á 43:12 og þriðja var Hulda Kristín Helgadóttir á 44:55.

Í 5 km hlaupi sigraði Ólafur Oddsson á 17:01, Heiðar Hrafn Halldórsson var annar á 17:56 og þriðji var Brynjar Viggósson á 18:53. Í kvennaflokki sigraði Andrea Kolbeinsdóttir ÍR á nýju brautarmeti 17:56, önnur var Sonja Sif Jóhannsdóttir UFA á 20:46 og þriðja var Ágústa Edda Björnsdóttir á 21:29.

Sex sveitir kepptu í boðhlaupi í 10 km og þar var það sveit Íslandsbanka sem bar sigur úr bítum á 44:55, í öðru sæti var sveigin B9 á 51:55 og þriðja var sveit Öldrunarheimila Akureyrar á 52:27.

Tíma allra sem hlupu má sjá hér.