Arnar og Andrea Íslandsmeistarar í hálfmaraþoni
Akureyrarhlaup fór fram í kvöld í blíðskaparveðri. Keppt var í 5 km, 10 km og hálfmaraþoni og var hálfmaraþonið jafnframt Íslandsmeistaramót í greinnni.

Akureyrarhlaup fór fram í kvöld í blíðskaparveðri. Keppt var í 5 km, 10 km og hálfmaraþoni og var hálfmaraþonið jafnframt Íslandsmeistaramót í greinnni. Arnar Pétursson og Andrea Kolbeinsdóttir sigruðu hálfmaraþoninu og eru Íslandsmeistarar 2023 í greininni. Arnar hljóp á 1:08:22 bætti brautarmet Baldvins Þórs Magnússonar frá í fyrra um 26 sekúndur. Andrea hljóp á 1:17:42 og bætti fyrra brautarmet sem Elín Edda Sigurðardóttir og Sigþóra Brynja Kristjánsdóttir deildu um heilar þrjár mínútur og sinn persónulega besta árangur um 10 sekúndur.
Annar karla var Þórólfur Ingi Þórsson á 1:13:56 og þriðji var Guðmundur Daði Guðlaugsson á 1:14:19 sem er bæting hjá honum um eina og hálfa mínútu. Í kvennaflokki var Íris Anna Skúladóttir önnur á 1:18:20 sem er mínútubæting á hennar besta tíma og þriðja var Íris Dóra Snorradóttir á 1:21:19.

Andrea og Arnar á harðahlaupum Í Akureyrarhlaupi.
Einnig var keppt í 5 og 10 km hlaupi. Í 5 km hlaupi sigraði Sigþóra Brynja Kristjánsdóttir í kvennaflokki á 18:30 önnur var Rannveig Oddsdóttir á 19:15 og þriðja var Guðný Petrína Þórðardóttir á 21:15. Í karlaflokki var Atli Steinn Sveinbjörnsson fyrstur á 17:32, annar var Björgvin Ingi Ólafsson á 19:37 og þriðji var Arnar Karlsson á 20:23.
Í 10 km hlaupi karla háðu Þorbergur Ingi Jónsson og Snorri Björnsson harða baráttu um fyrsta sætið. Þorbergur sigraði á 32:16 sem er Íslandsmet í aldursflokki 40-44 ára, Snorri var annar á 32:20 sem er hans besti tími til þessa og þriðji var Börkur Þórðarson á 34:25 sem er einnig hans besti tími. Í kvennaflokki sigraði Anna Berglind Pálmadóttir á persónulegu meti 37:44, önnur var Hulda Fanný Pálsdóttir á 38.52 sem er einnig hennar besti tími og þriðja var Fríða Rún Þórðardóttir á 40:03.

