Aldursflokkamet hjá Kolbeini í 400 m
Kolbeinn Höður Gunnarsson bætti árangur sinn í 400 m hlaupi á móti í Mannheim í dag.
Kolbeinn Höður Gunnarsson bætti árangur sinn í 400 m hlaupi á móti í Mannheim í dag. Kolbeinn hljóp á 47,87 sek. en fyrir átti hann best 47,91 frá því á Norðurlandamóti 19 ára og yngri í fyrra. Bætti Kolbeinn þar með sitt eigið aldursflokkamet í flokki 18–19 ára.

