← Allar fréttir

Akureyrarmót UFA og Norðlenska (1)

Akureyrarmót UFA og Norðlenska var haldið 21. ágúst síðastliðinn í veðurblíðu. Níutíu keppendur mættu til leiks, flestir voru iðkendur UFA en einng mættu góðir hópar frá Þingeyingum, Skagfirðingum og Húnvetningum auk annarra sem sumir hverjir komu lengra að.

Akureyrarmót UFA og Norðlenska var haldið 21. ágúst síðastliðinn í veðurblíðu. Níutíu keppendur mættu til leiks, flestir voru iðkendur UFA en einnig mættu góðir hópar frá Þingeyingum, Skagfirðingum og Húnvetningum auk annarra sem sumir hverjir komu lengra að.

Íslandsmet í sleggjukasti 14 ára stúlkna (3,0 kg) var slegið af Birnu Jónu Sverrisdóttur UÍA, þegar hún kastaði sleggjunni 41,98 m, óskar UFA henni innilega til hamingju með árangurinn.

Keppt var í sjö greinum í flestum aldursflokkum 10 ára og eldri og því var dagurinn strembinn hjá þeim sem kepptu í flestum eða öllum greinum sem í boði voru. Keppendur stóðu sig reglulega vel og mikið var um bætingar. Öll úrslit má finna á eftirfarandi hlekk: Þór - Mótaforrit FRÍ

Fyrir yngstu keppendurnar var boðið upp á þrautabraut þar sem þau kepptu í spretthlaupi, langstökki, skutlukasti, reipitogi og hindrunarhlaupi. Krakkarnir voru kappsfull og höfðu bæði þau og foreldrar þeirra gaman af, enda hafa þau eflst á fjölbreyttum frjálsíþróttaæfingum sumarsins.

Stjórn UFA þakkar keppendum og starfsmönnum mótsins kærlega fyrir árangursríkt og skemmtilegt mót.

Akureyrarmót Akureyrarmót Akureyrarmót Akureyrarmót Akureyrarmót Akureyrarmót Akureyrarmót
Myndir: Unnar Vilhjálmsson