Akureyrarmót UFA og Norðlenska
Akureyrarmót UFA og Norðlenska verður haldið í Boganum laugardaginn 23. apríl nk. Boðið er upp á þrautabraut fyrir 9 ára og yngri, en keppt er í flokkum frá 10-11 ára upp í karla- og kvennaflokk.

Akureyrarmót UFA og Norðlenska verður haldið í Boganum laugardaginn 23. apríl nk. Boðið er upp á þrautabraut fyrir 9 ára og yngri, en keppt er í flokkum frá 10-11 ára upp í karla- og kvennaflokk.
Skráningar skulu berast í gegnum mótaforrit FRÍ (www.fri.is) eigi síðar en fyrir miðnætti fimmtudaginn 21. apríl 2022. Þjálfarar munu auglýsa eftir skráningum keppenda UFA en mótið er öllum opið. Ekki verður hægt að skrá sig á staðnum.
Skráningargjald er 1.500 kr á hvern keppanda 9 ára og yngri í þrautabraut en 3.000 kr á hvern keppanda 10 ára og eldri óháð fjölda keppnisgreina.
Hlekkir á boðsbréf og tímaseðil eru hér fyrir neðan en reikna má með að tímaseðill verði uppfærður miðað við fjölda keppenda.

