← Allar fréttir

Akureyrarmót UFA

Fjölmennt var á Akureyrarmóti UFA sem fram fór um liðna helgi en keppendur frá ellefu félögum mættu til leiks. Góður árangur náðist á mótinu, persónuleg met voru sett ásamt nokkrum tilraunum við Íslandsmet. Hafdís Sigurðardóttir sigraði í þeim þrem einstaklingsgreinum sem hún tók þátt í. Hún hljóp 100metrana á 11,74s, mjög gott hlaup hjá henni en vindurinn aðeins of mikill til að hlaupið teljist löglegt. Hafdís gerði atlögu að Íslandsmetinu í 200m hlaupi þegar hún hljóp á 23,90s í löglegum vindi og er það 3-4 besti árangur íslenskrar konu. Þá stökk hún 6,24m í langstökki. Kolbeinn Fannar Gíslason sem keppi r í flokki 12-13 ára sigraði hástökkið þegar hann sveif yfir 1,57m. Hann átti afar góða tilraun við nýtt íslandsmet í sínum flokki þegar hann rétt felldi 1,61 það kemur næst! Þá reyndu piltar 18-19 ára úr Breiðablik við nýtt íslandsmet í 4*100 metra boðhlaupi og voru ekki fjarri því að slá það þegar þeir hlupu á 44,46s en metið er 44,01s.

Fjölmargir iðkendur UFA voru sigursælir á mótinu:





Jón Þorri Hermannsson sem keppir í flokki 10-11 ára pilta sigraði allar þær 5 einstaklingsgreinar sem hann tók þátt í.

Andrea Þorvaldsdóttir sem keppir í flokki 10-11 ára stúlkna vann 2 gull, 1 silfur og 2 brons.

Frosti Brynjólfsson sem keppir í flokki 12-13 ára pilta sigraði í þeim þrem einstaklingsgreinum sem hann tók þátt í.

Ragúel Pino Alexandersson sem keppir einnig í flokki 12-13 ára pilta vann 2 gull og 2 brons.

Máney Ósk Egilssdóttir sem keppir í flokki 12-13 ára stúlkna vann 1 gull, 2 silfur og 2 brons.

Steinunn Björg Óladóttir sem keppir einnig í flokki 12-13 ára stúlkna vann 2 gull og 1 brons.

Sigþór Gunnar Jónsson sem keppir í flokki 14-15 ára pilta vann 3 gull, 1 silfur og 3 brons.

Selma Líf Þórólfsdóttir sem keppir í flokki 14-15 ára stúlkna vann 2 gull, 1 silfur og 1 brons.

Rún Árnadóttir sem einnig keppir í flokki 14-15 ára stúlkna vann 1 gull, 3 silfur og 1 brons.

Stefán Þór Jósefsson sem keppir í karlaflokki vann 3 gull, 4 silfur og 1 brons.

Haukur Geir Valsson sem einnig keppir í karlaflokki vann 1 gull, 1 silfur og 1 brons.

Agnes Eva Þórarinsdóttir sem keppir í kvennaflokki var 1 gull, 2 silfur og 1 brons.

Rakel Ósk Björnsdóttir sem einnig keppir í kvennaflokki vann þær tvær einstaklingsgreinar sem hún tók þátt í.

Upptalningin hér að ofan er engan veginn tæmandi yfir þann góða árangur sem iðkenndur UFA náðu á mótinu. Öll úrslit mótsins má finna á slóðinni: http://mot.fri.is/cgi-bin/ibmot/timesedillib2134.htm

Þá sigraði UFA stigakeppnina í öllum flokkum nema karla og kvennaflokki en þar bar UMSS sigur úr býtum.

Til hamingju með helgina UFA