Akureyrarmót og afmælishátíð
Helgina 17. og 18. ágúst fer Akureyrarmót UFA fram. Keppt verður í fjölda greina í öllum aldursflokkum og reiknum við með að allir okkar iðkendur taki þátt í mótinu. Mótið er einnig hluti af mótaröð FRÍ sem er röð opinna frjálsíþróttamóta þar sem reiknað er með að fremstu frjálsíþróttamenn landsins verði í eldlínunni.
Skránining fer fram á mótaforriti FRÍ, skráningarfrestur er til miðnættist þriðjudaginn 13. ágúst, en þó er hægt að skrá sig til kl. 11 á föstudagsmorgun gegn þreföldu skráningargjaldi (á við um aðra keppendur en iðkendur hjá UFA). Keppnisgreinar og tímaseðil má sjá á mótaforriti FRÍ
Í tilefni af 25 ára afmæli félagsins bjóðum við til afmælishátíðar á Þórsvelli að kvöldi laugardagsins kl. 19:00. Þangað er öllum keppendum og aðstandendum þeirra boðið til grillveislu.

