← Allar fréttir

Ágúst Bergur sexfaldur íslandsmeistari

UFA átti einn keppanda á MÍ öldunga um síðustu helgi. Ágúst Bergur Kárason gerði sér lítið fyrir og vann íslandsmeistaratitil í sex greinum.

UFA átti einn keppanda á MÍ öldunga um síðustu helgi, Ágúst Berg Kárason. Hann gerði sér lítið fyrir og vann íslandsmeistaratitil í sex greinum, 60m, 200m, 400m, 800m, langstökki og þrístökki.