Ágúst Bergur og Anna Berglind fyrst í vetrarhlaupi UFA
Fjórða vetrarhlaup vetrarins fór fram í morgun, í frosti og snjó eins og lög gera ráð fyrir.
Fjórða vetrarhlaup vetrarins fór fram í morgun, í frosti og snjó eins og lög gera ráð fyrir. Ágúst Bergur Kárason kom fyrstur í mark á 40:38, annar var Snæþór Aðalsteinsson á 40:49 og þriðji karla var Stefán Ármann Hjaltason á 42:55. Fyrst kvenna var Anna Berglind Pálmadóttir á 41:24, önnur var Sigríður Einarsdóttir á 48:24 og þriðja var Bryndís María Davíðsdótir á 48:57.
Hér má sjá tíma allra sem hlupu og stöðuna í stigakeppni einstaklinga og liða.

