8 Íslandsmeistaratitlar á MÍ 11-14 ára og sigur í stigakeppni í flokki 13 ára pilta
Nú um helgina fór fram Meistaramót Íslands í flokki 11-14 ára. 12 keppendur kepptu fyrir hönd UFA á móti með góðum árangri. Helstu úrslit voru þessi:
Nú um helgina fór fram Meistaramót Íslands í flokki 11-14 ára en 12 keppendur kepptu fyrir hönd UFA á þessu móti. Helstu úrslit voru þessi:
Ragnar Óli Ragnarsson sem keppir í flokki 11 ára pilta stóð sig afar vel og varð þrefaldur Íslandsmeistari, vann auk þess 1 silfur og 1 brons. Hann bætti sinn persónulega árangur í öllum þeim greinum sem hann tók þátt í. Ragnar varð Íslandsmeistari í 800m hlaupi á tímanum 2:49,12s, hann sigraði einnig í hástökki þegar hann stökk yfir 1,26m (átti 1,18m) og kúluvarpið er hann varpaði kúlunni 9,60m (átti 8,94m). Ragnar varð annar í langstökki með stökk upp á 4,10m (átti 3,90) og í þriðja sæti í 60m hlaupi á tímanum 09,00s (átti 9,53s).
Jón Þorri Hermannsson sem keppir í flokki 12 ára pilta varð í þriðja sæti í langstökki með stökk upp á 4,30m sem er bæting á hans persónulega árangri.
Ragúel Pino sem keppir í flokki 13 ára pilta varð þrefaldur Íslandsmeistari og bætti einnig árangur sinn í þremur greinum. Ragúel sigraði í 60m hlaupi á tímanum 8,20s (átti 8,25s), 800m hlaupi á tímanum 2:23,54s (átti 2:34,46s) og 60m grindarhlaupi á tímanum 10,05s. Þá varð hann í öðru sæti í hástökki með stökk yfir 1,49m, í langstökki með stökk upp á 5,10m (átti 5,02m) og í kúluvarpi 10,39m.
Kolbeinn Fannar Gíslason sem einnig keppir í flokki 13 ára pilta varð Íslandsmeistari í hástökki þegar hann stökk yfir 1,55m en það er bæting hjá honum um 2cm. Hann varð í öðru sæti í 60m grindarhlaupi á tímanum 10,52s (átti 10,62s). Kolbeinn Fannar varð í þriðja sæti í 800m hlaupi á tímanum 2:38,58s sem og í langstökki með stökk upp á 4,88m (átti 4,84m).
Arnar Valur Vignisson sem keppir í flokki 14 ára pilta var þriðji í 60m grindarhlaupi á tímanum 10,50s.
Boðhlaupssveit UFA í flokki 13 ára pilta sigraði glæsilega í 4*200m hlaupi á tímanum 1:58,56s. 13 ára piltarnir urðu einnig Íslandsmeistarar í stigakeppninni í sínum flokki með 114 stig. Öll úrslit má finna á:
http://mot.fri.is/cgi-bin/ibmot/timesedillib2205.htm
Til hamingju með árangurinn krakkar!

