← Allar fréttir

5 Íslandsmeistaratitlar á fyrri keppnisdegi MÍ 15-22 ára

Nú um helgina fer fram Meistaramót Íslands í flokki 15-22 ára og eru 16 keppendur skráðir til leiks frá UFA. Helstu úrslit frá fyrri keppnisdegi eru:

Nú um helgina fer fram Meistaramót Íslands í flokki 15-22 ára og eru 16 keppendur skráðir til leiks frá UFA. Helstu úrslit frá fyrri keppnisdegi eru:

Stefán Þór Jósefsson varð þriðji í hástökki í flokki ungkarla 20-22 ára þegar hann stökk 1,70m. Hann varð einnig þriðji í langstökki með stökk upp á 5,72m. Kolbeinn Höður Gunnarsson, sem keppir í flokki drengja 18-19 ára, varð íslandsmeistari í 60m hlaupi á nýju persónulegu meti 7,03s og 400m hlaupi, í flokki ungkarla 20-22 ára, á tímanum 49,72s. Þá varð Agnes Eva Þórarinsdóttir íslandsmeistari í langstökki í flokki ungkvenna 20-22 ára með stökk upp á 5,26m. Steinunn Erla Davíðsdóttir, sem keppir í flokki ungkvenna 20-22 ára, varð önnur í 60m hlaupi á tímanum 8,02s og önnur í 400m hlaupi á tímanum 58,15. Guðbjörg Ósk Sveinsdóttir varð íslandsmeistari í langstökki í flokki 18-19 ára stúlkna með stökk upp á 4,75m og varð þriðja í 60m hlaupi á tímanum 8,53s. Berglind Björk Guðmundsdóttir varð íslandsmeistari í 800m hlaupið í flokki 16-17 ára stúlkna á tímanum 2:37,46. Selma Líf Þórólfsdóttir varð önnur í hástökki í flokki 16-17 ára þegar hún stökk yfir 1,60m. Sesselja Dís Hreiðarsdóttir varð önnur í kúluvarpi í flokki 15 ára stúlkna með kast upp á 10,08m.

Í heildarstigakeppninni er UFA í þriðja sæti, í flokki ungkarla og ungkvenna er UFA í öðru sæti sem og í flokki stúlkna 16-17 ára.

Öll úrslit má sjá á http://mot.fri.is/cgi-bin/ibmot/timesedillib2201.htm

Þetta er glæsilegur árangur frá fyrri keppnisdegi og óskum við keppendum til hamingju með hann en sendum þeim jafnframt góða strauma fyrir keppni morgundagsins.