4 Íslandsmeistaratitlar á seinni degi MÍ og mörg persónuleg met
Keppendur UFA héldu áfram að standa sig vel á seinni keppnisdegi MÍ 15-22 ára. Helstu úrslit frá þeim degi eru:
Keppendur UFA héldu áfram að standa sig vel á seinni keppnisdegi MÍ 15-22 ára. Helstu úrslit frá þeim degi eru:
Steinunn Erla varð önnur í 200m hlaupi í flokki ungkvenna á tímanum 25,95s sem er veruleg bæting á hennar besta tíma innanhúss en fyrir hafði hún hlaupið þessa vegalengd á tímanum 26,47s.
Agnes Eva varð önnur í þrístökki ungkvenna 20-22 ára með stökk upp á 10,74m
Stefán Þór varð Íslandsmeistari í þrístökki ungkarla 20-22 ára með stökk upp á 11,44, annar í stangarstökki þegar hann sveif yfir 3,80m en það er jöfnun á hans persónulega meti í greininni innanhús. Þá varð Stefán þriðji í 60m grindarhlaupi á tímanum 9,76s.
Kolbeinn Höður varð Íslandsmeistari í 200m hlaupi drengja 18-19 ára á tímanum 21,90s sem er hans annar besti tími.
Guðbjörg Ósk varð Íslandsmeistari í 60m grindarhlaupi stúlkna 18-19 ára á tímanum 10,10s og varð önnur í 200m hlaupi stúlkna 18-19 ára á tímanum 27,66s en það er einnig persónulegt met hennar í greininni.
Rún Árnadóttir varð Íslandsmeistari í stangarstökki stúlkna 16-17 ára á nýju persónulegu meti í greininni 2,75m.
Boðshlaupssveit UFA stúlkna 16-17 ára varð í öðru sæti í 4*200m boðhlaupi á tímanum 1:53,66
Í stigakeppninni varð lið UFA í öðru sæti í flokki ungkarla 20-22 ára með 34 stig, þriðja sæti í flokki ungkvenna með 30 stig, þriðja sæti í flokki stúlkna 18-19 ára með 20 stig og þriðja sæti í flokki stúlkna 16-17 ára með 28 stig.
Í heildarstigakeppninni varð UFA í fjórða sæti með 130 stig.
Til hamingju með glæsilegann árangur!!!
Minnum á að öll úrslit mótsins má sjá á http://mot.fri.is/cgi-bin/ibmot/timesedillib2201.htm

