1. maí hlaup UFA - úrslit
Mikið fjölmenni var í 1. maí hlaupi UFA. í Um 480 hlauparar á öllum aldri hlupu af stað og þá eru ótaldir þeir foreldrar sem tóku sprettinn sem fylgdarmenn barna sinna í styttri hlaupunum.

Mikið fjölmenni var í 1. maí hlaupi UFA. Um 480 hlauparar á öllum aldri hlupu af stað og þá eru ótaldir þeir foreldrar sem tóku sprettinn sem fylgdarmenn barna sinna í styttri hlaupunum. Veðrið lék við okkur, sól og blíða, það gerist ekki betra.
Tæplega 160 leikskólabörn hlupu einn hring á vellinum eftir góða upphitun undir stjórn frjálsíþróttaþjálfarans okkar, Unnars Vilhjálmssonar. Kappið var mikið og sprettu þau vel úr spori.
Um 230 grunnskólabörn hlupu svo af stað í 2 km hring, í þremur hópum eftir aldri. Þau komu þreytt en sæl í mark eftir afrekið. Máttu þeir foreldrar sem fylgdu sumum eftir hafa sig öll við að missa ekki af þeim.
Að lokum hófst 5 km hlaup og þar voru skráð til leiks um 60 krakkar og 30 fullorðnir. Leiðin er býsna löng og á fótinn lengi framan af en allir stóðu sig vel og skiluðu sér kátir í mark. Úrslit hlaupsins má nálgast hér. Ekki tókst að afhenda verðlaun fyrir fyrstu þrjú sætin í mismunandi aldursflokkum á staðnum því rýna þurfti upptökur til að vera viss um rétt úrslit. Verðlaunaafhending fyrir þrjú fyrstu sætin í hlaupinu í hverjum aldursflokki verður á frjálsíþróttavellinum mánudaginn 6. maí 2024 kl. 18:30.
Í þátttökukeppni grunnskóla sigraði Þelamerkurskóli í hópi fámennari skóli en þar tóku 27% nemenda þátt í hlaupinu. Í flokki fjölmennari skóla sigraði Síðuskóli, þar tóku 11% nemenda þátt í hlaupinu. Við óskum skólunum til hamingju með þennan léttstíga nemendahóp.
Allir þátttakendur fengu þátttökupening að launum og frímiða í sund. Auk þess var pizzusneið frá Sprettinum og drykkur frá MS í boði upp við Hamar fyrir hlaupara.
Við hjá UFA erum alsæl með þátttökuna, kraftinn og gleðina sem var í hópnum, hlökkum strax til næsta 1. maí hlaups að ári.
Kunnum við styrktaraðilum hlaupsins bestu þakkir fyrir stuðninginn en þeir voru:
Akureyrarbær og Heilsueflandi samfélag, Þelamerkurskóli, Svalbarðsstrandarhreppur og Eyjafjarðarsveit. Sprettur-inn, MS og Stéttarfélögin á Eyjafjarðarsvæðinu.
Kristófer Sigmarsson er mikill áhugamaður um 1. maí hlaupin þó hann sé ekki á vegum UFA. Hann var með myndavélina á lofti og fylgdist með öllu hlaupinu, á upptökunni hans getur hver og einn séð sinn tíma í hlaupunum. Athugið þó að allir tímar í leikskólahlaupinu og 2 km hlaupinu eru eingöngu til gamans, eingöngu er um þátttökuhlaup að ræða og því ekki um eiginlega keppni að ræða. UFA heldur ekki utan um neina skráningu meta í hlaupunum: https://www.youtube.com/watch?v=V7q1fu-LicY
Akureyri.net mætti á svæðið og fangaði stemninguna í hlaupinu, þar má sjá skemmtilegar myndir af leikskóla og grunnskólahlaupinu.

