Hlaupaleið í vetrarhlaupi 27. nóvember 2019

Annað Vetrarhlaup UFA verður haldið miðvikudaginn 27.nóvember kl.17:30. Miðasala hefst kl.17.00 í World Class við Strandgötu og kostar miðinn 500 kr að venju.

Hlaupaleiðin:

Hlaupið hefst við innkeyrsluna inn á bílastæðið við World Class/Hof. Hlaupið er eftir gangstéttinni og síðan göngustíg meðfram Strandgötu, Glerárgötu og Drottningarbraut inn að innkeyrslunni að flugvellinum. Þar er snúið við og sama leið hlaupin til baka. Vegalengd u.þ.b. 7 km. Engar brekkur!

Svæði

 Ungmennafélag Akureyrar   |   UFA