• hlaup

    Langar þig að hlaupa?

    UFA Eyrarskokk býður upp á hlaupaæfingar við allra hæfi. Kynntu þér málið og prófaðu að kíkja á æfingu.

    Nánari upplýsingar hér.

     

  • MÍ 11-14 2021
  • MÍ 15-22 ára 2021

    UFA býður upp á frjálsíþróttaæfingar fyrir alla aldurshópa. Við getum bætt við okkur iðkendum í öllum aldursflokkum. Nánari upplýsingar hér.

Hlaupaleið í Vetrarhlaupi 28. febrúar 2018

Hlaupið byrjar og endar við Bjarg. Skráning á staðnum frá kl. 17.30

Leiðin er um það bil 7,3 km.

Byrjað á Bugðusíðu á móts við Bjarg. Hlaupið eftir Bugðusíðu, Austursíðu, Síðubraut og Vestursíðu. Beygt niður Bugðusíðu og hlaupið fram hjá Bjargi (grænn hringur á korti) og aftur sami hringur þar til komið er niður á miðja Vestursíðu, þá er beygt inn Bröttusíðu og hlaupið niður Borgarbraut að hringtorgi og beygt þar inn á Bugðusíðuna (gulur hringur á korti) og Vestursíðuhringurinn hlaupinn öfuga leið (blár hringur á korti). Það er upp Vestursíðu, Síðubraut niður Austursíðu og endað á móts við Bjarg.

Svæði

 Ungmennafélag Akureyrar   |   UFA