Borgarbraut og Bykobrekka

Byrjað á Bugðusíðu framan við Bjarg, hlaupið upp Austursíðuna, niður Borgarbraut og áfram niður Tryggvabrautina, beygt þar til vinstri norður eftir Krossanesbraut og henni fylgt út að Óðinsnesi, beygt upp þar og hlaupið upp Bykobrekkuna, yfir Hörgárbrautina við hringtorgið og áfram eftir Síðubraut að Vestursíðu, hlaupið niður Vestursíðu að Lögmannshlíð og beygt þar inn á göngustíginn sem liggur framhjá Lögmannshlíð og Síðskóla yfir á Bugðusíðu og endað við Bjarg.

Svæði

 Ungmennafélag Akureyrar   |   UFA