UFA dagurinn og spretthlaupsmót

Fimmtudaginn 3. júní nk. kl. 17:30-19:30 verður UFA dagurinn á frjálsíþróttavellinum, Þórssvæðinu við Bogann. Þá ætlum við að gera okkur glaðan dag, bjóða upp á þrautabraut fyrir 9 ára og yngri og spretthlaupsmót fyrir 10 ára og eldri. Skráð verður í hlaupin á staðnum og að hlaupi loknu verður boðið upp á grillaðar pylsur og safa fyrir þátttakendur. Við vonumst til að sjá sem flesta þar.

Dagskrá:
Kl. 17:30 - Þrautabraut fyrir 9 ára og yngri
Kl. 18:00 - Spretthlaupsmót

Kær kveðja, frá stjórn og iðkendum Ungmennafélags Akureyrar.


Svæði

 Ungmennafélag Akureyrar   |   UFA