• hlaup

    Langar þig að hlaupa?

    UFA Eyrarskokk býður upp á hlaupaæfingar við allra hæfi. Kynntu þér málið og prófaðu að kíkja á æfingu.

    Nánari upplýsingar hér.

     

  • MÍ 15-22 ára 2021

    UFA býður upp á frjálsíþróttaæfingar fyrir alla aldurshópa. Við getum bætt við okkur iðkendum í öllum aldursflokkum. Nánari upplýsingar hér.

  • MÍ 11-14 2021

Minningarmót Ólivers

Minningarmót Ólivers verður haldið í Boganum laugardaginn 4. desember nk. Boðið er upp á þrautabraut fyrir 9 ára og yngri, en keppt er í flokkum frá 10-11 ára upp í karla- og kvennaflokk.

RUB23 gefur öll verðlaun mótsins!

Skráningar skulu berast í gegnum mótaforrit FRÍ (www.fri.is) eigi síðar en fyrir miðnætti fimmtudaginn 2. desember 2021. Þjálfarar munu auglýsa eftir skráningum keppenda UFA en mótið er öllum opið. Ekki verður hægt að skrá sig á staðnum.

Skráningargjald er 1.500 kr á hvern keppanda 9 ára og yngri í þrautabraut en 3.000 kr á hvern keppanda 10 ára og eldri óháð fjölda keppnisgreina.

Í samræmi við reglur FRÍ um framkvæmd móta þurfa allir (keppendur, þjálfarar, starfsfólk, áhorfendur) sem fæddir eru 2015 og eldri að framvísa neikvæðri niðurstöðu úr hraðprófi, niðurstaðan má ekki vera eldri en 48 klst gömul. Einnig verða skráð nöfn, kennitölur og símanúmer allra mótsgesta.

Hlekkir á boðsbréf og tímaseðil eru hér fyrir neðan en reikna má með að tímaseðill verði uppfærður miðað við fjölda keppenda. 
Boðsbréf - Tímaseðill

 


Svæði

 Ungmennafélag Akureyrar   |   UFA