Ungmennafélag Akureyrar

Ungmennafélag Akureyrar, UFA

Velkomin á heimasíðu UFA

Kennitala 520692 2589
Reikningsnúmer 0566 26 7701
Pósthólf 385, 600 Akureyri

Nýjustu fréttir

  • Ungmennavika á Grænlandi

    Dagana 1.-12. ágúst verður haldin Norræn ungmennavika á Nuuk á Grænlandi. Vikan sem er nú reyndar rúmlega vika, ber heitið ARSARNERIT eða NORÐURLJÓS.
    Þátttakendur verða m.a. frá Danmörku, Svíþjóð, Noregi, Finnlandi, Eistlandi, Grænlandi og Íslandi en einungis fimm íslensk ungmenni á aldrinum 16 – 25 ára fá að fara í þetta ævintýri. Einn íslenskur fararstjóri fer með íslenska hópnum út og verður með honum allan tímann.
    Tilgangur verkefnisins er að ungmenni þessara landa kynnist og takist á við sameiginleg verkefni. Meðal verkefna sem unnið verður að eru; sagan, matargerð, listir, umhverfið, íþróttir og menntun.
    Heildarkostnaður er um 150.000.- en með styrk UMFÍ verður hlutur þátttakenda kr. 50.000.- Sú venja hefur hinsvegar viðgengist að héraðssamband og félag sem viðkomandi er í hafa styrkt þátttakenda til fararinnar og dæmi eru um að þessir aðilar hafi greitt hlut þátttakenda að fullu.
    Umsóknir um þátttöku skal senda á Ómar Braga Stefánsson omar@umfi.is fyrir 1.júní 2012 en hann veitir jafnframt frekari upplýsingar um Ungmennavikuna.
    Á facebook má finna meira um þetta á: nordisk ungdomsuge 2012


  • Þríþrautarkeppni aflýst

    Vegna afleitrar veðurspár fyrir sunnudaginn, hefur þríþrautinni sem halda átti á Hrafnagili á sunnudag verið aflýst.

  • Þríþrautarkeppni á sunnudag

    Næstkomandi sunnudag, 13. maí standa Langhlaupa- og þríþrautadeild UFA og Þríþrautarfélag Norðurlands fyrir sprettþríþraut á Hrafnagili. 400 m sund, 10 km hjól og 3 km hlaup. Þrautin hefst kl. 10:00 en þátttakendur þurfa að vera mættir kl. 9:30. Tekið er við skráningum á netfangið elias@ferdamalastofa.is getið um nafn, aldur og áætlaðan sundtíma fyrir 400 m mögulega þarf að takmarka þátttöku svo það borgar sig að skrá sig tímanlega. Þátttökugjald er kr. 1000 og greiðist í sundlauginni á Hrafnagili á sunnudagsmorgun. Nánari upplýsingar veita Guðmundur í síma 822 4706 og Elías í síma 898 9435.

  • Frítt að æfa í maí

    Í maí býður UFA nýjum iðkendum að koma og prófa að æfa frjálsar án endurgjalds. Við hvetjum krakka á öllum aldri til að nýta tækifærið til að kynna sér íþróttina með því að kíkja á æfingu. Æfingatöfluna má sjá hér.

Deildarval

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning