Ungmennafélag Akureyrar

Ungmennafélag Akureyrar, UFA

Vetrarhlaup UFA

Vetrarhlaup UFA 2011-2012

Úrslit vetrarhlaupa 2011-2012

Úrslit fyrir ára

Eins og undanfarna vetur stendur Langhlauparadeildin fyrir hlaupasyrpu í vetur. Hlaupin fara fram síðasta laugardag í mánuði frá október og fram í mars.
29. október
26. nóvember
31. desember
28. janúar
25. febrúar
31. mars

Hlaupin hefjast við Bjarg kl. 11:00 og þaðan er hlaupinn 10 km. hringur.

Skráning á staðnum frá kl. 10:30 á hlaupadag.
Hlauparar geta haft fataskipti á Bjargi og farið í sturtu og heita potta eftir hlaup.

Þátttökugjald er kr. 500 í hvert hlaup.
En frítt fyrir börn og unglinga sem æfa frjálsar íþróttir hjá UFA.

Keppt er í stigakeppni í flokki karla og kvenna og einnig í tveimur aldursflokkum, 39 ára og yngri og 40 ára og eldri.
Allir þátttakendur fá eitt stig fyrir hvert hlaup sem þeir taka þátt í. Fjögur efstu sætin í hverjum flokki gefa síðan 2-5 stig, þannig að fyrsti maður fær 5 stig, annar 4 stig, þriðji 3 stig og fjórði 2 stig. Ef stigafjöldi efstu manna verður jafn eftir öll hlaupin skal sá raðast ofar sem oftar hefur sigrað hinn og/eða hlaupið á betri tímum.

LIÐAKEPPNI
Í vetur verður einnig keppt í liðakeppni. Þrír til fimm geta skráð sig saman í sveit og gildir samanlagður tími fyrstu þriggja í sveitinni í hverju hlaupi (séu fjórir eða fimm skráðir í sveit þurfa þeir því ekki allir að mæta alltaf í öll hlaupin). Stigagjöf fyrir liðakeppnina verður með sama hætti og í einstaklingskeppninni. Fyrsta sveitin fær fimm stig, önnur fjögur og svo koll af kolli.

Verðlaun verða veitt að loknu síðasta hlaupinu, fyrir efstu sætin í stigakeppni karla og kvenna, auk útdráttarverðlauna. Þátttaka í hverju hlaupi gefur einn miða í pottinn svo þeir sem taka þátt í öllum hlaupunum eiga sex miða í pottinum, vinningsmöguleikar aukast því eftir því sem fólk hleypur oftar.

Hlaupaleiðin
Hlaupið upp Austursíðu inn á malarveg sem liggur að Vestursíðu, niður Vestursíðu, eftir göngustíg í gegnum Giljahverfi, Hlíðarbraut, Skógarlundur, Mýrarvegur, Hringteigur, Mímisbraut, Mýrarvegur, Skógarlundur, Hlíðarbraut, Austursíða, Bugðusíða að Bjargi. Kort væntanlegt

Hér má sjá kort af hlaupaleiðinni.

Deildarval

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning