UFA hélt fyrsta Akureyrarhlaupið í júlí 1992. Hlaupið bar þá heitið Akureyrarmaraþon en 2003 var heiti þess breytt í Akureyrarhlaup UFA þar sem það þótti villandi að tala um maraþon þegar lengsta vegalengdin var hálft maraþon.
Fyrstu ár hlapsins var hlaupið fram í fjörð en 1994 var hlaupið flutt inn á Akureyrarvöll og hefur rás- og endamark verið þar síðan. Leiðin í hálfmaraþoni hefur að mestu verið óbreytt frá 1994 en 10 km. leiðinni hefur verið breytt a.m.k. einu sinni.
1998 gerði Martha Ernstsdóttir tilraun til að setja íslandsmet í brautinni, -en bíl hafði verið heitið að launum fyrir íslandsmet. Martha var tæpri mínútu frá metinu, hljóp á 1:12:29 -en íslandsmet hennar er 1:11:40 sett 1996 og stendur enn.
Brautarmet karla á Daníel Smári Guðmundsson 1:16:23 sett 2002.
Úrslit fyrri ára









