Ungmennafélag Akureyrar

Ungmennafélag Akureyrar, UFA

Lög UFA

1. grein
Félagið heitir Ungmennafélag Akureyrar, skammstafað UFA. Heimili þess og varnarþing er á Akureyri.

2. grein
Tilgangur félagsins er:
    að efla íþróttastarfsemi á Akureyri með aðaláherslu á iðkun frjálsra íþrótta.
    að stuðla að þroskandi félagsstarfi.
    að vinna að heilbrigðu líferni og gegn hvers konar notkun vímuefna.

3. grein
Aðalfund skal halda í febrúarmánuði ár hvert. Þá skal kjósa 7 menn í stjórn og 2 menn í varastjórn sem stija fundi. Stjórnin velur sér formann en skiptir að öðru leyti með sér verkum. Endurkjör er heimilt.

4. grein
Aðalfund skal boða með minnst 5 daga fyrirvara. Aðalfundur er löglegur sé löglega til hans boðað. Þá getur stjórn félagsins boðað til almenns félagsfundar ef þurfa þykir. Einnig er stjórninni skylt að boða til almenns félagsfundar ef 15 félagar eða fleiri æskja þess og skulu þessir fundir boðaðir með minnst 5 daga fyrirvara.

5. grein
Árgjöld félagsmanna skal ákveða á aðalfundi. Reikningsár er frá áramótum til næstu áramóta.

6. grein
Félagar geta allir orðið ef meirihluti stjórnar samþykkir umsókn þeirra. Vísa má beiðni um inntöku til endanlegrar ákvörðunar almenns félagsfundar. Iðkendur sem keppa fyrir UFA verða sjálfkrafa félagar. Börn yngri en 12 ára hafa ekki atkvæðisrétt en hafa heimild til fundarsetu.

7. grein
Stjórn félagsins sér um allar framkvæmdir þess og skal hún leggja fram fjárhagsáætlun til umræðu og samþykktar á aðalfundi og ber gjaldkera að haga greiðslum sínum sem mest eftir henni. Heimilt er að starfrækja deildir innan félagsins til þess að sjá um ákveðna þætti starfseminnar, þær deildir hafa ekki ráðstöfunarrétt á fjármálum félagsins nema með samþykki aðalstjórnar.

8. grein
Félögum er skylt að hlýða lögum félagsins og annast þau störf í þágu félagsins sem félagsfundur eða stjórn félagsins felur þeim.

9. grein
Úrsögn úr félaginu skal tilkynna til stjórnar.

10. grein
Lögum þessum má aðeins breyta á lögmætum aðalfundi og þurfa tillögur um lagabreytingar að berast til stjórnar félagsins með minnst 14 daga fyrirvara. Samþykki 2/3 hluta fundarmanna þarf til að lagabreytingar öðlist gildi.

Lög þessi öðlast þegar gildi.

Dags 26. febrúar 2007.

Deildarval

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning