Gömlu leirubrýrnar
Mjög auðveld og þægileg leið. Marflatt, engin bílaumferð og fullt af fólki á gangi (svo þú skerð þig ekki úr þó þú ákveðir að ganga hluta af leiðinni). Það eru u.þ.b. 2,5 km. yfir brýrnar svo með því að fara fram og til baka má ná 5 km. en auðvitað er hægt að snúa við hvenær sem er og það eru kílómetramerkingar á nokkrum stöðum.
Kjarnaskógur
Trimmbrautin er 2,2 km. en auk þess liggur fullt af skemmtilegum stígum um skóginn. Í skóginum er skjól fyrir veðri og vindum og einstaklega fallegt umhverfi. Brekkurnar geta þó reynst byrjendum erfiðar, en það er allt í lagi að ganga upp þær erfiðustu.
Naustaborgir
Leiðin gegnum Naustaborgirnar og inn í Kjarna er um 3-4 km. löng en hægt er að velja um nokkra hringi, gott kort af svæðinu er við bílastæðið sunnan golfvallarins.
Hitaveiturörin
Meðfram hitaveiturörunum liggur vegarslóði frá Naustavegi og inn í Kjarna. Fyrri hluti hans er malbikaður en síðan tekur við grýttur vegarslóði. Engin umferð og falleg leið um 1,5 km. löng. Hægt að lengja með því að hlaupa áfram inn í Kjarna, niðrá leiruveginn eða eftir Drottningarbrautinni til baka.
Rangárvellir
Ofan við Rangárvelli liggur gamall malarvegur inn að Giljahverfi (neðan við hesthúsahverfið) þarna er lítil sem engin umferð og þægilegt að hlaupa. Frá Giljahverfinu og að spennustöðinni við Rangárvelli er um 1 km. en hægt er að hlaupa hring niður á Hlíðarbraut, lengja túrinn upp Lögmannshlíðina, eða áfram eftir ýmsum vegarslóðum sem liggja um þetta svæði. Athugið þó að eitthvað af þessum vegum eru reiðvegir og tölverð umferð ríðandi manna um svæðið. Hestunum er mörgum hverjum illa við hlaupandi menn og því nauðsynlegt að hægja á sér og fara vel út í kant til að mætast.
Háskólastígurinn
Skemmtileg leið innanbæjar, auðvelt að búa sér til hring hvort heldur sem er frá brekkunni eða þorpinu, en vissulega svolitlar brekkur. Frá Þingvallastrætinu og að undirgöngunum er u.þ.b. 1 km. þar er hægt að beygja upp Borgarbrautina og hlaupa eftir göngustígnum neðan við Hlíðarbrautina, þessi hringur er u.þ.b. 2,5 km. Það má líka fara undir Borgarbrautina og hlaupa eftir göngustíg ofan við Þórssvæðið, upp Skarðshlíðina og upp að Hlíðarbraut eða aftur inn á Háskólastíginn, þá er hringurinn orðinn um 5 km.









