Ungmennafélag Akureyrar

Ungmennafélag Akureyrar, UFA

Akureyrarhlaup Íslenskra verðbréfa

30. júní 2011
10 og 21,1 km. hlaup

UFA hefur haldið Akureyrarhlaup frá því sumarið 1992 og hlaupið í ár er því það tuttugasta í röðinni.

Að þessu sinni fer hlaupið fram á fimmtudagskvöldi kl. 20:00 um eina mestu ferðahelgi ársins á Akureyri, þegar hundruð manna leggja leið sína í bæinn til að taka þátt í fótboltamótum Þórs og KA og vonumst við til að úr verði vel heppnuð íþróttahelgi á Akureyri.

Hlaupið hefst við Átak og er hlaupið um eyrina og suður Drottingarbraut og Eyjafjarðarbraut, hlaupaleiðin er því marflöt og vænleg til góðra afreka. Keppt er í tveimur vegalengdum 10 km hlaupi og hálfmaraþoni.

Allar nánari upplýsingar um hlaupið er að finna á heimasíðu þess, akureyrarhlaup.is.

 

 

Deildarval

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning