UFA hefur haldið 1. maí hlaupið allt frá fyrstu starfsárum sínum. Hlaupið er keppni á milli grunnskóla þar sem keppt er um hlutfallslega þátttöku og sá skóli sem sigrar hlýtur veglegan bikar. Í skólakeppninni geta krakkarnir valið um að hlaupa 2 eða 5 km. og 5 km hlaupið er einnig opið öðrum keppendum.
Að þessu sinni verður einnig boðið upp á leikskólahlaup, þar sem leikskólakrakkar hlaupa einn hring á vellinum. Hlaupið er eingöngu til gamans, ekki er um keppni milli leikskóla að ræða, en þátttakendur fá að sjálfsögðu verðalaunapening, pizzu og svala eins og aðrir þátttakendur.
Greifinn og Sportver hafa verið aðalstyrktaraðilar hlaupsins frá upphafi, en auk þeirra hafa Verkalýðsfélögin og Vífilfell styrkt hlaupið undanfarin ár og svo verður einnig í ár.
Hlaupaleiðir og vegalengdir
Hlaupið er frá Þórsvellinum, vegalengdir eru þrjár 400 m, 2 km, 5 km. Hægt er að sjá kort af leiðunum með því að smella á fyrirsagnirnar. Kort af 5 km leiðinni kemur inn á næstu dögum.
Hlaupaleið í 2 km hlaupi:
Hlaupið er ræst við suðurenda stúkunnar. Hlaupið eftir brautinni en út af henni á móts við Bogann. Hlaupið eftir stéttinni meðfram Boganum og út um hliðið neðan við hann. Þar er tekin u-beygja og farið inn á malarveginn neðan við íþróttavöllinn. Stígurinn hlaupinn út á enda og niður Háhlíð. Beygt þar til hægri og hlaupið eftir Höfðahlíðinni framhjá Glerárskóla upp að Drangshlíð. Beygt þar til hægri og inn á stíginn ofan við íþróttavöllinn. Hlaupið eftir stígnum að Hamri og inn á völlinn ofan við Hamar og endað inni á vellinum á sama stað og byrjað var.
Hlaupaleið í 5 km hlaupi:
Hlaupið er ræst austan megin á vellinum í beygjunni sunnan megin á vellinum, hlaupinn er hálfhringur á vellinum og út af honum að norðan (ofan við Hamar) og beygt upp á göngustíginn þar ofan við. Hlaupið eftir stígnum niður að Skarðshlíð og yfir götuna á gangbrautinni. Skarðshlíðinni fylgt að Borgarbraut, farið yfir Borgarbrautina og inn á göngustíginn sem liggur ofan Glerár og honum fylgt upp á Hlíðarbraut og síðan niður á Þingvallastræti. Beygt inn á göngustíg á móts við Hrísalund, framhjá háskólanum og gegnum undirgöngin undir Borgarbrautina, yfir Glerá og upp á Höfðahlíða. Krækt niður fyrir Glerárskóla og inn á völlinn og hlaupinn u.þ.b. hálfur hringur á vellinum.
Keppni hefst kl. 12:00 í krakkahlaupinu en 12:30 í 5 km -en athugið að skráningu lýkur kl. 11:30
Hlaupin verða ræst í þessari röð:
Leikskólahlaup kl. 12:00
Allir leikskólakrakkar hlaupa saman einn hring á vellinum.
2 km. hlaup, fyrsti hópur kl. 12:10
7-8 ára stelpur og strákar
9-10 ára stelpur og strákar
11-12 ára stelpur og strákar
13 ára og eldri
5 km hlaup kl. 12:30
Allir hlauparar ræstir á sama tíma framan við stúkuna kl. 12:30.
Foreldrum er velkomið að fylgja börnum sínum í hlaupinu og þurfa ekki að greiða þátttökugjöld fyrir það.
Skráning
Æskilegt er að sem flestir skrái sig fyrir keppnisdag, það auðveldar mótshöldurum utanumhald og dregur úr örtröð á hlaupadag. Keppnisgjöld eru því lægri í forskráningu auk þess sem þeir sem skrá sig í forskráningu eiga möguleika á að hreppa útdráttarverðlaun frá Sportveri.
Hægt er að forskrá sig í Sportveri 28. - 30. apríl og á netinu. Forskráningu lýkur kl. 18:00 laugardaginn 30. apríl. Þeir sem skrá sig á netinu þurfa að mæta í Hamar milli kl. 10:00 og 11:30 á keppnisdag og sækja númerið sitt og greiða þátttökugjaldið.
Athugið að við erum ekki með posa, svo greiða þarf með peningum, eða millifæra á reikning félagsins og prenta út kvittun sem framvísað er þegar númerin eru sótt.
Þáttökugjöld
Í forskráningu:
Leikskólabörn kr. 500
Grunnskólanemendur kr. 1000
Fullorðnir kr. 1500
Á hlaupadag:
Leikskólabörn kr. 1000
Grunnskólanemendur kr. 1500
Fullorðnir kr. 2000
Fjölskylduafsláttur: fjölskylda greiðir aldrei meira en 3000 kr í forskráningu, en 3.500 á keppnisdag
Skólaafsláttur: skólar geta séð um skráningu sinna keppenda. Þ.e. tekið niður nöfn og fæðingarár allra sem ætla að hlaupa og sent í einu lagi á netfangið: rannodd@hi.is fyrir kl. 18:00 föstudaginn 29. apríl. Keppendur greiða þá þáttökugjaldið (kr. 1000) þegar þeir sækja númerið sitt á hlaupadag. Ef skólarnir sjá einnig um að innheimta keppnisgjaldið hjá nemendum sínum og greiða í einu lagi inn á reikning UFA er veittur aukaafsláttur af skráningargjöldum og hvert barn greiðir aðeins kr. 800. Nánari upplýsingar um þetta veitir Rannveig í tölvupósti á fyrrgreint netfang eða í síma 8647422. Æskilegt er að fá að vita fyrirfram hvaða skóla vilja nýta sér þetta til að koma í veg fyrir tvískráningar.
Verðlaun, viðurkenningar og veitingar
Allir þátttakendur fá viðurkenningarpening, pizzu og Svala
Þeir skólar sem er með hæst hlutfall þátttakenda annars vegar í flokki fámennra skóla og hins vegar í flokki fjölmennra skóla hljóta veglegan farandbikar og eignarbikar.
Útdráttarverðlaun fyrir þá sem skrá sig í forskráningu.
Athugið að ekki verða veitt verðlaun fyrir fyrstu sætin í hverjum flokki, hvorki í 2 km né 5 km hlaupi, en röð og tímar allra sem hlaupa 5 km verða birtir á heimasíðu UFA eftir hlaupið.









