Jólakveðja frá Landflutningum Samskip
Almennt - þriðjudagur 13.des.11 21:30 - Rannveig Oddsdóttir - Lestrar 216
Landflutningar -Samskip hafa ákveðið að styðja dyggilega við bakið á barna og unglingastarfi hér á Akureyri. LS gefa allt andvirði jólapakkasendinga sinna til og frá Akureyri í sjóð ÍBA til úthlutunar til aðildarfélaganna eftir viðurkenndu úthlutunarkerfi. Leggjum okkar lóð á vogarskálarnar og styðjum þetta frábæra framtak. Flytjum jólapakkana með Landflutningum því það rennur allt í okkar góða barna- og unglingastarf.






