Ungmennafélag Akureyrar

Ungmennafélag Akureyrar, UFA

Nýjustu fréttir

  • Stórmót ÍR

    Sextánda Stórmót ÍR var haldið í Laugardalshöllinni um helgina. Keppendur UFA sem tóku þátt voru 18 að þessu sinni og voru margir þeirra í verðlaunasætum og að bæta sinn persónulega árangur. Mótið var mjög fjölmennt en um 740 keppendur voru frá 24 félögum og samböndum og þar af voru 47 keppendur frá Færeyjum.
    Hafdís Sigurðardóttir sigraði langstökk kvenna á mótsmeti þegar hún stökk 6,15m. Þetta er næstbesti árangur íslenskrar konu innanhúss frá upphafi. Hafdís sigraði einnig 400m hlaup kvenna á 56,90 sek og hún varð síðan í 2.sæti í 60m hlaupi á 7,84sek.
    Kolbeinn Höður Gunnarsson í flokki 16-17 ára varð í 1.sæti í 60m hlaupi á 7,30sek, 1.sæti í 200m hlaupi á 22,62sek og 1.sæti í 400mhlaupi á 51,94sek
    Selma Líf Þórólfsdóttir sigraði í hástökki 15 ára, stökk 1,55m
    Heiðrún Dís Stefánsdóttir varð í 1.sæti í 800m hlaupi 18ára og eldri á 2:29,27sek og í 2.sæti í 400m hlaupi á 62,77sek
    Stefán Þór Jósefsson varð í 2.sæti í 60m grindahlaupi 18ára og eldri á 9,67sek, 3.sæti í stangarstökki með 3,80m, 3.sæti í kúluvarpi með 10,86m og í 3.sæti í 800m hlaupi á 2:23,42sek
    Sunna Rós Guðbergsdóttir varð í 2.sæti í þrístökki 15ára, stökk 10,36m og í 2.sæti í langstökki með 4,79m
    Fríða Björk Einarsdóttir varð í 3.sæti í kúluvarpi 14ára stúlkna með 9,97m og Sesselja Dís Heiðarsdóttir varð í 3.sæti í kúluvarpi 13ára stúlkna með 10,0m

  • Vetrarhlaup viđ erfiđar ađstćđur

    Fjórða vetrarhlaup vetrarins fór fram í morgun í fljúgandi hálku. Sextán hlauparar létu það ekki fá sig og skautuðu 10 km hringinn. Fyrstu í mark var Stefán Viðar Sigtryggsson á 41:16 annar var sveitungi hans Snæþór Aðalsteinsson á 44:25 og þriðji var Halldór Arinbjarnarson á 44:40. Fyrst kvenna var Sonja Sif Jóhannsdóttir á 48:16 önnur var Sigríður Einarsdóttir á 48:39 og þriðja var Vilborg Þórarinsdóttir á 56:00. Í liðakeppninni bar Víkingasveitin sigur úr bítum í þetta sinn og náði þar með sveit Bjargs í samanlögðum stigafjölda og ljóst að þessar tvær sveitir munu bítast áfram um liðaverðlaunin. Hér má sjá úrslitin.

  • Ćfingar falla niđur föstudag 27. jan

    Æfingar í höllinni falla niður í dag föstudaginn 27. janúar vegna blakmóts. Æfingar á sunnudag verða hins vegar samkvæmt æfingatöflu.

  • Leiđrétt úrslit í fjölţraut

    Í frétt um úrslit á MÍ í fjölþrautum hér á síðunni var ranglega farið með úrslit í fimmtarþraut stúlkna 17 ára og yngri. Ásgerður Jana Ágústdóttir úr UFA sigraði í þarutinni. Við óskum Ásgerði Jönu til hamingju með góðan árangur og biðjumst velvirðingar á þessum mistökum í fréttaflutningi.

     


Deildarval

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning